Krakkajóga námskeið fyrir 4-7 ára hefst 13. september 2026 | Jógasetrið

Krakkajóga námskeið fyrir 4-7 ára hefst 13. september 2026

 

KRAKKAJÓGA 4 – 7 ára með foreldrum
13. september – 8. nóvember 2026
Sunnudagar kl.11.30 – 12.15 (8 vikur)
ATH. Vetrarfrí 25. október
Verð: 17.000 kr.

20% systkinaafsláttur

Frábær reyndur kennari, María Shanko.

Kenndar eru jógastöður og æfingar sem styrkja jafnvægi, einbeitingu og samhæfingu.

Námskeiðið er mjög fjölbreytt og oft stuðst við mismunandi þema til auka enn á fjölbreytnina. Gott flæði hreyfinga einkennir tímana þar sem farið er frá einni hreyfingu til annarra án mikillar áreynslu þar sem barnið styrkir líkamsvitund og rýmisgreind. Þarfir og langanir barnsins eru sett í fyrirrúmi. Möntrur eru kyrjaðar, kenndar einfaldar öndunaræfingar og förum í leiki og spuna. Í lok tímans er nemandi leiddur áfram í stutta slökun sem er jafn nauðsynleg öðrum jógahreyfingum sem og öndun.

Í krakkajóga verður að vera gaman, við æfum okkur í að treysta hvort öðru og samþykkja að það er nóg að vera þú sjálf/ur alveg eins og þú ert.

„Gefðu barninu þínu gjöf að anda, slaka, leika, finna, njóta og vera“

„Það er meðfætt tilkall hverrar manneskju að vera hraust, helg og hamingjusöm“