
Jóga fyrir 60 PLÚS – Ný námskeið hefjast 12. og 13. október 2026
Mánu- og miðvikudagar
12. október – 16. desember (10 vikur). Verð: 32.000 kr.
Þriðju- og fimmtudagar
13. október – 17. desember (10 vikur). Verð: 32.000 kr.
Það er aldrei of seint að byrja að stunda jóga – Allt á þínum forsendum!
Nærandi jógatímar á stólum og gólfi þar sem boðið er upp á rólegar æfingar eftir getu hvers og eins. Áhersla er á öndun, teygjur, styrk, gleði, liðleika, hugleiðslu og slökun.
Öndunaræfingar hjálpa okkur að dýpka andardráttinn og kyrra hugann. Jógaæfingarnar draga úr stirðleika líkamans og auka teygjanleika og mýkt. Hugleiðslan hjálpar við að hægja á hugsanaflóðinu og njóta hvers andartaks betur. Léttar æfingar bæði á stól og á gólfi sem auka teygjanleika og mýkt, bæta jafnvægi og stöðugleika. Í lok hvers tíma er góð slökun sem gefur góða hvíld og nærir huga, hjarta og líkama.